Forsíđa
  • Íslenska
  • English
Glćsilegri Kirkjulistahátíđ 2010 lokiđ

kirkjan_uti_flottKirkjulistahátíð í Hallgrímskirkju 2010 er nú lokið, en hún hófst á pálmasunnudag 28. mars og lauk sunnudaginn 11. apríl. Yfir sex þúsund gestir sóttu hátíðina heim og tóku mörghundruð manns þátt í undirbúningi hennar og flutningi. Tugir glæsilegra viðburða voru á dagskrá hátíðarinnar, í flutningi og umsjón bæði íslenskra og erlendra listamanna.

Lokaviðburður hátíðarinnar var flutningur Mótettukórs Hallgrímskirkju, Brahms-hljómsveitar Kirkjulistahátíðar, Birgitte Christensen sópransöngkonu og Andreasar Schmidt baritónsöngvara undir stjórn Harðar Áskelssonar á Þýskri sálumessu Johannesar Brahms, á tvennum tónleikum. Hlutu tónleikarnir fjórar og hálfa stjörnu í umfjöllun tónlistargagnrýnanda Morgunblaðsins mánudaginn 12. apríl.

Kirkjulistahátíð 2010 þakkar öllum gestum hjartanlega fyrir komuna og þátttakendum fyrir ánægjulegt og glæsilegt samstarf.

 
Grein um verkiđ Leiđslu eftir Ólöfu Nordal

olof_nordal_leidslaHér fyrir neðan gefur að líta grein eftir Ólaf Gíslason, þar sem fjallað er um verk Ólafar Nordal sem er myndlistarsýning Kirkjulistahátíðar 2010 og opnaði í Hallgrímskirkju á pálmasunnudag. Verk Ólafar ber yfirskriftina Leiðsla, en greinin heitir  Leiðsla - Um samband fagurfræðilegrar og trúarlegrar reynslu í verki Ólafar Nordal og er áhugaverð lesning  sem setur verkið í heimspekilegt og trúarsögulegt samhengi.

 Viðtal við Ólöfu Nordal (20mín)

Lesa meira...
 
Skemmtilegar myndir frá hátíđinni 2010

2345-1Með því að smella hér má skoða myndir frá Kirkjulistahátíð 2010. Þar gefur m.a. að líta myndir frá helgigöngunni á upphafsdegi hátíðarinnar, helgun biskups Íslands á nýjum hurðum Hallgrímskirkju, skírn barns í hátíðamessu á pálmasunnudag, úr tónlistarandakt í hádeginu, og æfingum og flutningi á Þýskri sálumessu Brahms.

Ljósmyndarar eru Eddi, Hrefna Haraldsdóttir o.fl.