|
Brahms
|
|
|
Hér fyrir neðan gefur að líta grein eftir Ólaf Gíslason, þar sem fjallað er um verk Ólafar Nordal sem er myndlistarsýning Kirkjulistahátíðar 2010 og opnaði í Hallgrímskirkju á pálmasunnudag. Verk Ólafar ber yfirskriftina Leiðsla, en greinin heitir Leiðsla - Um samband fagurfræðilegrar og trúarlegrar reynslu í verki
Ólafar Nordal og er áhugaverð lesning sem setur verkið í heimspekilegt og trúarsögulegt samhengi.
Viðtal við Ólöfu Nordal (20mín)
|
|
Lesa meira...
|
|
|
Kirkjulistahátíð í Hallgrímskirkju 2010 er nú lokið, en hún hófst á pálmasunnudag 28. mars og lauk sunnudaginn 11. apríl. Yfir sex þúsund gestir sóttu hátíðina heim og tóku mörghundruð manns þátt í undirbúningi hennar og flutningi. Tugir glæsilegra viðburða voru á dagskrá hátíðarinnar, í flutningi og umsjón bæði íslenskra og erlendra listamanna.
Lokaviðburður hátíðarinnar var flutningur Mótettukórs Hallgrímskirkju, Brahms-hljómsveitar Kirkjulistahátíðar, Birgitte Christensen sópransöngkonu og Andreasar Schmidt baritónsöngvara undir stjórn Harðar Áskelssonar á Þýskri sálumessu Johannesar Brahms, á tvennum tónleikum. Hlutu tónleikarnir fjórar og hálfa stjörnu í umfjöllun tónlistargagnrýnanda Morgunblaðsins mánudaginn 12. apríl.
Kirkjulistahátíð 2010 þakkar öllum gestum hjartanlega fyrir komuna og þátttakendum fyrir ánægjulegt og glæsilegt samstarf.
|
|
|
Með því að smella hér má skoða myndir frá Kirkjulistahátíð 2010. Þar gefur m.a. að líta myndir frá helgigöngunni á upphafsdegi hátíðarinnar, helgun biskups Íslands á nýjum hurðum Hallgrímskirkju, skírn barns í hátíðamessu á pálmasunnudag, úr tónlistarandakt í hádeginu, og æfingum og flutningi á Þýskri sálumessu Brahms.
Ljósmyndarar eru Eddi, Hrefna Haraldsdóttir o.fl.
|
|
|
Lokadagur Kirkjulistahátíðar 2010 er í dag, 11. apríl, og fara seinni tónleikar lokatónleikanna fram í Hallgrímskirkju kl. 17. Flutt verður eitt af stórverkum kirkjutónbókmenntanna, Þýsk
sálumessa eftir
Johannes Brahms. Hér er um að ræða hrífandi verk um sorg og huggun,
dauða og upprisu, sem nú er flutt í fyrsta sinn
af Mótettukór Hallgrímskirkju og Herði Áskelssyni. Hingað til lands eru
komnir tveir stórsöngvarar, norska sópransöngkonan Birgitte
Christenssen, ein af skærustu stjörnum norsku þjóðaróperunnar, og þýski
baritónsöngvarinn Andreas Schmidt, sem margoft hefur heillað íslenska
tónleikagesti með söng sínum en kemur jafnframt reglulega framí helstu
tónleikasölum heims, til að taka þátt í flutningnum ásamt Mótettukór
Hallgrímskirkju og fimmtíu manna hljómsveit
skipuð hljóðfæraleikurum úr kammersveitinni Ísafold og
Sinfóníuhljómsveit Íslands ásamt fjórum náttúruhornleikurum, m.a. frá Basel í
Sviss. Stjórnandi er Hörður Áskelsson.
Miðaverð á tónleikana er 4.900 kr. - smelltu hér til að kaupa miða!
|
|
|
<< Nýjast < Nýrra 1 2 3 4 5 6 Eldra > Elst >>
|
| Niðurstöður 1 - 5 af 30 |