Forsíða arrow 29. mars
  • Íslenska
  • English
Mánudagur í dymbilviku, 29. mars PDF Prenta Tölvupóstfang

___________________________________

kl. 12.00 Tónlistarandtakt. Íhugun um pálmavið.
Umsjón: Sr. Kristján Valur Ingólfsson. Tónlistarflutningur: Bragi Bergþórsson tenór.


kl. 20.00 Úr fjötrum til frelsis: Spuni um afró-ameríska sálma

Flytjendur eru Gunnar Gunnarsson, Klais-orgel Hallgrímskirkju, Sigurður Flosason, saxófónn, og Þórir Baldursson, Hammond-orgel.

Sálmaspuni þeirra félaga hlaut frábærar undirtektir troðfullrar Hallgrímskirkju á síðastliðinni Menningarnótt. Nú leggja þeir upp með heila dagskrá hinna svokölluðu „negrasálma“. Stærsta pípuorgel landsins mætir Hammond-orgelinu, rafknúnum frænda sínum úr heimum gospels og blústónlistar við undir- og yfirleik saxófónsins. Nýstárleg blanda sem lyftir hug í hæðir og spannar styrkleikaskalann frá núlli og upp í skýin.

Aðgangseyrir kr. 2.500 / 2.000.