Forsíða arrow 1. apríl - Skírdagur
  • Íslenska
  • English
Skírdagur, 1. apríl PDF Prenta Tölvupóstfang
___________________________________

„Leyfið börnunum að koma til mín"
 

kl. 13.30 HALLGRÍMSKIRKJA  - kirkjan, turninn og kennileitið

 

Listasmiðja fyrir börn á aldrinum 5-12 ára í samvinnu við Myndlistaskólann í Reykjavík. Í listasmiðjunni ætlum við að skoða og rannsaka þessa stórkostlegu byggingu, að utan og innan, og fáum að fara um ýmsa króka og kima sem öllu jafna eru ekki opnir gestum og gangandi. Leiðbeinendur í listasmiðjunni koma frá Myndlistaskólanum í Reykjavík og eru myndlistarmenn og arkitektar. Þar sem fjöldi þátttakenda er takmarkaður er nauðsynlegt að skrá þátttöku í síma: 869 7766. Umsjón: Þorbjörg Þorvaldsdóttir, yfirmaður barnadeildar Myndlistaskólans í Reykjavík.

Listasmiðjunni lýkur um kl. 15.30.

Þátttökugjald: 1.000 kr.

 

kl. 17.00 Söngvahátíð barna - Kórtónleikar 100 barna ásamt hljóðfæraleikurum
Flytjendur: Stúlknakór Seljakirkju, Unglingakór Hafnarfjarðarkirkju, Graduale Futuri úr Langholtskirkju, Kórskóli Langholtskirkju og  Skólakór Holtaskóla í Keflavík. Hljóðfæraleikarar: Kjartan Valdemarsson píanó, Haukur Gröndal klarinett/saxófónn/flautur, Gunnar Hrafnsson bassi, Erik Qvic  trommur/slagverk og Pétur Valgarð Péturssson gítar. Stjórnandi: Tómas Guðni Eggertsson, organisti Seljakirkju.

Biskup Íslands, herra Karl Sigurbjörnsson heldur stutt erindi milli laga.

Aðgangur ókeypis – allir velkomnir.

---

Stjórnandi Stúlknakórs Seljakirkju: Anna Margrét Óskarsdóttir
Stjórnendur Unglingakórs Hafnarfjarðarkirkju: Helga Loftsdóttir og Anna Magnúsdóttir
Stjórnandi Graduale Futuri úr Langholtskirkju: Rósa Jóhannesdóttir
Stjórnandi Kórskóla Langholtskirkju: Þóra Björnsdóttir
Stjórnandi Skólakórs Holtaskóla í Keflavík: Guðbjörg Rut Þórisdóttir

 

kl. 20.00 Getsemanestund - afskrýðing altaris við tónlist Gesualdo
Kvöldmessa með altarisgöngu.Flutt verður tónverkið Tenebrae Responsoria eftir ítalska renaissance-tónskáldið Gesualdo. Flytjendur eru meðlimir úr kammerkórnum Schola cantorum: Elfa Margrét Ingvadóttir sópran, Kirstín Erna Blöndal sópran, Guðrún Edda Gunnarsdóttir alt, Guðmundur Vignir Karlsson tenór, Hafsteinn Þórólfsson barítón og Benedikt Ingólfsson bassi. Stjórnandi: Hörður Áskelsson. Prestur: sr. Jón Dalbú Hróbjartsson.