Forsíđa arrow 2. apríl - Föstudagurinn langi
  • Íslenska
  • English
Föstudagurinn langi, 2. apríl PDF Prenta Tölvupóstfang
___________________________________

kl. 11.00 Guðsþjónusta með tónlist fyrir föstudaginn langa, m.a. eftir J.S. Bach.
Flytjendur Mótettukór Hallgrímskirkju ásamt hljóðfæraleikurum, stjórnandi og orgelleikari  Hörður Áskelsson. Prestur sr. Birgir Ásgeirsson. Messunni er útvarpað beint á Rás 1.

kl.13-15.30 Passíusálmar Hallgríms Péturssonar, heildarflutningur – fyrri hluti
Flytjendur eru nemendur af höfuðborgarsvæðinu, sem hafa unnið til verðlauna í Stóru upplestrarkeppninni í 7. bekk undanfarin fjögur ár. Stóra upplestrarkeppnin í 7. bekk er skipulögð af Röddum, samtökum um vandaðan upplestur og framsögn. Umsjón: Baldur Sigurðsson dósent við KHÍ, ásamt Svanhildi Óskarsdóttur, Ingibjörgu Einarsdóttur og  Þorleifi Haukssyni. Ókeypis aðgangur - allir velkomnir!

kl. 17.00 Hallgrímspassía eftir Sigurð Sævarsson
Schola cantorum og Caput hópurinn flytja Hallgrímspassíu Sigurðar Sævarssonar. Stjórnandi er Hörður Áskelsson og konsertmeistari er Sigrún Eðvaldsdóttir.
Hlutverk:
Hallgrímur Pétursson: Jóhann Smári Sævarsson bassi
Pílatus: Benedikt Ingólfsson barítón
Jesús: Hafsteinn Þórólfsson barítón,
Guðrún Edda Gunnarsdóttir alt,
Júdas: Guðmundur Vignir Karlsson tenór
Kaífas: Örn Arnarson tenór.

Þetta áhrifamikla verk,sem byggir á Passíusálmum Hallgríms Péturssonar, var frumflutt af sömu flytjendum í Hallgrímskirkju á föstudaginn langa árið 2007.

Aðgangseyrir 3.500 / 2.500

kl.19.00-21.30 Passíusálmar Hallgríms Péturssonar, heildarflutningur – síðari hluti
Flytjendur: sjá fyrir ofan.