|
___________________________________
Listavaka ungs fólks ...frá myrkri til ljóss!
Listflutningur með ungu listafólki í allri kirkjunni. Listdans, spuni, fjölbreyttur tónlistarflutningur og gjörningur tileinkaður yfirskrift hátíðarinnar.
Umsjónarmaður listavökunnar er Melkorka Ólafsdóttir flautuleikari.
kl. 15.00 Fagnaðargjörningur í klukkuturninum
Flutt verða verk fyrir kirkjuklukkur og lúðra eftir Viktor Orra Árnason og Hjört Ingva Jóhannesson úr hljómsveitinni Hjaltalín og Guðmund Stein Gunnarsson og Inga Garðar Erlendsson úr Samtökum listrænt ágengra tónsmiða umhverfis Reykjavík (S.L.Á.T.U.R.). Hjörtur Ingvi spilar á kirkjuklukkur.
Einnig koma fram hljóðfæraleikararnir:
Ella Vala Ármansdóttir horn
Grímur Helgason klarinett
Ari Hróðmarsson básúna
Vilhjálmur Sigurðsson trompet
kl. 16:30 Kammertónleikar í suðurvæng kirkjunnar
Hljóðfæraleikarar úr Kammersveitinni Ísafold og Kammerhópnum Elektru leika fjölbreytta kammertónlist.
Fram koma hljóðfæraleikararnir:
Hrönn Þráinsdóttir píanó
Emilía Rós Sigfúsdóttir þverflauta
Helga Þóra Björgvinsdóttir fiðla
Margrét Árnadóttir selló
Grímur Helgason klarinett
Katie Buckley harpa
Jesper Petersen
Frank Arnik
kl. 18.00 Aftansöngur á aðfangadegi páska
Íhugun um sabbatum sanctum, hinn helga laugardag.
kl. 21:15 Spuni í myrkri kirkju - tónlistar- og dansspuni og Ólöf Arnalds
Fram koma:
Danshópurinn HNOÐ
Borgar Magnason kontrabassi
Katie Buckley harpa
Ingrid Karlsdóttir fiðla
Margrét Árnadóttir slló
Grímur Helgason klarinett
Jesper Petersen blokkflauta
Ólöf Arnalds söngkona
kl. 23.00 Vigil – páskavaka frá myrkri til ljóss
Páskavökulestur – skírnarminning – páskaljósið borið úr kryptu í kór – altarið skrýtt. Táknræn helgistund með rætur í aldagamalli hefð kristinnar kirkju. Umsjón: Sr. Kristján Valur Ingólfsson.
|