|
___________________________________
kl. 17.00 Lokatónleikar Kirkjulistahátíðar 2010 - Þýsk
sálumessa eftir Johannes Brahms
Eitt stærsta tónverk kirkjutónbókmenntanna verður nú flutt í fyrsta sinn
af Mótettukór Hallgrímskirkju og Herði Áskelssyni. Hápunktur rómantísku
óratóríunnar, hrífandi verk um sorg og huggun, dauða og upprisu.
Flytjendur: Birgitte Christenssen sópran frá Noregi, Andreas Schmidt
barítón frá Þýskalandi, Mótettukór Hallgrímskirkju, 50 manna hljómsveit
skipuð hljóðfæraleikurum úr kammersveitinni Ísafold og
Sinfóníuhljómsveit Íslands ásamt 4 náttúruhornleikurum, m.a. frá Basel í
Sviss.
Stjórnandi: Hörður Áskelsson.
Miðaverð: 4.900 kr. / 3.900 kr
|