| Dagskrá 2010 |
|
|
|
|
___________________________________
...frá myrki til ljóss!
Pálmasunnudagur
28. mars
Setning Kirkjulistahátíðar 2010 10.30 Innreiðin í Jerúsalem - Hósanna! Skrúðganga með „pálmagreinar“ upp Skólavörðustíg að Hallgrímskirkju með söng og lúðraþyt. Allir eru velkomnir að taka þátt í göngunni, sem hefst neðst á Skólavörðustíg . Skrúðgöngunni lýkur með því að biskup Íslands herra Karl Sigurbjörnsson, helgar aðalhurð Hallgrímskirkju, listaverk eftir Leif Breiðfjörð.
11.00 Hátíðarmessa í Hallgrímskirkju Biskup Íslands, herra Karl Sigurbjörnsson og prestar Hallgrímskirkju. Frumfluttur verður Introitus fyrir kór, tvo trompeta, tvær básúnur og orgel eftir Gunnar Andreas Kristinsson. Þátttakendur: Mótettukór Hallgrímskirkju, Drengjakór Reykjavíkur í Hallgrímskirkju, Ásgeir H. Steingrímsson og Eiríkur Örn Pálsson trompetar, Oddur Björnsson og Sigurður Þorbergsson básúnur, Björn Steinar Sólbergsson orgel, biskup Íslands, herra Karl Sigurbjörnsson, prestar Hallgrímskirkju, sr. Jón Dalbú Hróbjartsson og sr. Birgir Ásgeirsson, sr. Kristján Valur Ingólfsson, sr. Þorvaldur Karl Helgason biskupsritari o.fl. prestar, Magnea Sverrisdóttir djákni, Elín Edda Árnadóttir leikmynda- og búningahönnuður, Jón Hjartarson leikari, íbúasamtök Skólavörðustígs o.fl. Stjórnandi: Hörður Áskelsson.
Leiðsla - Myndlistarsýning Kirkjulistahátíðar opnuð við lok hátíðarmessunnar Ólöf Nordal myndlistarmaður hefur unnið nýtt verk í samvinnu við Jón Nordal tónskáld og sóknarbörn kirkjunnar við Sjafnargötu í Reykjavík. Verkið, sem ber nafnið Leiðsla, er í forkirkju, kirkjuskipi og klukkum Hallgrímskirkju.
12.45 Ólöf Nordal talar um verk sitt í forkirkjunni.
14.00 Ensk messa Prestur: Sr. Halldór Reynisson, verkefnastjóri á Biskupsstofu. Guðrún Finnbjarnardóttir forsöngvari, Björn Steinar Sólbergsson orgel.
17.00 “Amen höfuðskepnanna fjögurra” - Opnunartónleikar Kirkjulistahátíðar 2010 Messa fyrir orgel og segulband. Hans-Ola Ericsson, heimsþekktur organisti frá Svíþjóð, flytur eigið verk, sem er byggt á textum Olov Hartman. Ericsson leikur á Klais orgel Hallgrímskirkju í bland við hljóm Schnittker-orgela víða að. Stórfengleg orgelupplifun! Tæknistjórnun: Ríkharður H. Friðriksson tónskáld. Miðaverð: 3.000 kr. / 2.000 kr.
Mánudagur í
dymbilviku 29. mars
12.00 Tónlistarandakt - Íhugun um pálmavið Umsjón: Sr. Kristján Valur Ingólfsson. Tónlistarflutningur: Bragi Bergþórsson tenór. 20.00 Úr fjötrum til frelsis - Spuni um afró-ameríska sálma
Pípuorgel – Hammond – Saxófónn Sálmaspuni þeirra félaga hlaut frábærar undirtektir troðfullrar Hallgrímskirkju á Menningarnótt.
Nú leggja þeir upp með heila
dagskrá hinna svokölluðu „negrasálma“. Stærsta pípuorgel landsins
mætir Hammond-orgelinu, rafknúnum frænda sínum úr heimum gospels og
blústónlistar við undir- og yfirleik saxófónsins. Nýstárleg blanda sem
lyftir hug í hæðir og spannar styrkleikaskalann frá núlli og upp í skýin.
Þriðjudagur í dymbilviku 30. mars 10.30 Fyrirbænaguðsþjónusta í kórkjallara
12.00 Tónlistarandakt – íhugun um æðstaprestsbæn Jesú Krists Umsjón: Sr. Kristján Valur Ingólfsson. Tónlistarflutningur: Björn Steinar Sólbergsson orgel.
Miðvikudagur í
dymbilviku 31. mars
8.00
Árdegismessa með almennum skriftum Umsjón: Sr. Kristján Valur Ingólfsson.
12.00 Tónlistarandakt – Íhugun um lamb Krists Umsjón: Sr. Kristján Valur Ingólfsson. Tónlistarflutningur: 100 barna kór undir stjórn Tómasar Guðna Eggertssonar, organista Seljakirkju, ásamt hljóðfæraleikurum.
Skírdagur 1.
apríl
„Leyfið börnunum að koma til mín“
13.30 HALLGRÍMSKIRKJA - kirkjan, turninn og kennileitið Listasmiðja fyrir börn á aldrinum 5-12 ára í samvinnu við Myndlistaskólann í Reykjavík. Í listasmiðjunni ætlum við að skoða og rannsaka þessa stórkostlegu byggingu, að utan og innan, og fáum að fara um ýmsa króka og kima sem öllu jafna eru ekki opnir gestum og gangandi. Leiðbeinendur í listasmiðjunni koma frá Myndlistaskólanum í Reykjavík og eru myndlistarmenn og arkitektar. Þar sem fjöldi þátttakenda er takmarkaður er nauðsynlegt að skrá þátttöku í síma: 869 7766. Umsjón: Þorbjörg Þorvaldsdóttir, yfirmaður barnadeildar Myndlistaskólans í Reykjavík. Listasmiðjunni lýkur um kl. 15.30. Þátttökugjald: 1.000 kr.
17.00 Söngvahátíð barna - Kórtónleikar 100 barna ásamt hljóðfæraleikurum Flytjendur: Stúlknakór Seljakirkju, Unglingakór Hafnarfjarðarkirkju, Graduale Futuri úr Langholtskirkju, Kórskóli Langholtskirkju og Skólakór Holtaskóla í Keflavík. Hljóðfæraleikarar: Kjartan Valdemarsson píanó, Haukur Gröndal klarinett/saxófónn/flautur, Gunnar Hrafnsson bassi, Erik Qvic trommur/slagverk ogPétur Valgarð Péturssson gítar. Stjórnandi: Tómas Guðni Eggertsson, organisti Seljakirkju. Biskup Íslands, herra Karl Sigurbjörnsson heldur stutt erindi milli laga. Aðgangur ókeypis – allir velkomnir. ___ Stjórnandi Stúlknakórs Seljakirkju: Anna Margrét Óskarsdóttir Stjórnendur Unglingakórs Hafnarfjarðarkirkju: Helga Loftsdóttir og Anna Magnúsdóttir Stjórnandi Graduale Futuri úr Langholtskirkju: Rósa Jóhannesdóttir Stjórnandi Kórskóla Langholtskirkju: Þóra Björnsdóttir Stjórnandi Skólakórs Holtaskóla í Keflavík: Guðbjörg Rut Þórisdóttir
20.00 Getsemanestund - afskrýðing altaris við tónlist Gesualdo Kvöldmessa með altarisgöngu. Flutt verður tónverkið Tenebrae Responsoria eftir ítalska renaissance-tónskáldið Gesualdo. Flytjendur eru meðlimir úr kammerkórnum Schola cantorum: Elfa Margrét Ingvadóttir sópran, Kirstín Erna Blöndal sópran, Guðrún Edda Gunnarsdóttir alt, Guðmundur Vignir Karlsson tenór, Hafsteinn Þórólfsson barítón og Benedikt Ingólfsson bassi. Stjórnandi: Hörður Áskelsson. Prestur: sr. Jón Dalbú Hróbjartsson.
Föstudagurinn langi 2. apríl 11.00 Guðsþjónusta með föstutónlist eftir J.S. Bach Prestur: sr. Birgir Ásgeirsson. Flytjendur: Mótettukór Hallgrímskirkju. Stjórnandi og orgelleikari: Hörður Áskelsson.
13.00 Passíusálmar Hallgríms Péturssonar – heildarflutningur – fyrri hluti Flytjendur eru nemendur af höfuðborgarsvæðinu, sem hafa unnið til verðlauna í Stóru upplestrarkeppninni í 7. bekk undanfarin fjögur ár. Stóra upplestrarkeppnin í 7. bekk er skipulögð af Röddum, samtökum um vandaðan upplestur og framsögn. Umsjón: Baldur Sigurðsson dósent við KHÍ, ásamt Svanhildi Óskarsdóttur, Ingibjörgu Einarsdóttur og Þorleifi Haukssyni. Fyrri lestrarhluta lýkur um kl. 15. 30.
17.00 Hallgrímspassía eftir Sigurð Sævarsson Schola cantorum og Caput hópurinn undir stjórn Harðar Áskelssonar. Hlutverk: Hallgrímur Pétursson: Jóhann Smári Sævarsson bassi, Pílatus: Benedikt Ingólfsson barítón, Jesús: Hafsteinn Þórólfsson barítón, Guðrún Edda Gunnarsdóttir alt, Júdas: Guðmundur Vignir Karlsson tenór, Kaífas: Örn Arnarson tenór. Konsertmeistari: Sigrún Eðvaldsdóttir. Áhrifamikið verk, sem byggir á Passíusálmum Hallgríms Péturssonar og var frumflutt af sömu flytjendum í Hallgrímskirkju á föstudaginn langa 2007. Hallgrímspassían kemur nú út á geisladiski. Miðaverð: 3.500 kr. / 2.500 kr.
19.00 Passíusálmar Hallgríms Péturssonar – heildarflutningur – síðari hluti Flytjendur eru nemendur af höfuðborgarsvæðinu sem hafa unnið til verðlauna í Stóru upplestrarkeppninni í 7. bekk undanfarin fjögur ár. Umsjón: Baldur Sigurðsson dósent við KHÍ, ásamt Svanhildi Óskarsdóttur, Ingibjörgu Einarsdóttur og Þorleifi Haukssyni. Síðari lestrarhluta lýkur um kl. 21. 30.
Laugardagur fyrir
páska 3. apríl
Listavaka ungs fólks ...frá myrkri til ljóss! Listflutningur með ungu listafólki í allri kirkjunni. Listdans, spuni, fjölbreyttur tónlistarflutningur og gjörningur tileinkaður yfirskrift hátíðarinnar. Umsjónarmaður listavökunnar er Melkorka Ólafsdóttir flautuleikari.
18.00 Aftansöngur á aðfangadegi páska Íhugun um sabbatum sanctum, hinn helga laugardag.
23.00 Vigil – páskavaka frá myrkri til ljóss Páskavökulestur – skírnarminning – páskaljósið borið úr kryptu í kór – altarið skrýtt. Táknræn helgistund með rætur í aldagamalli hefð kristinnar kirkju. Umsjón: Sr. Kristján Valur Ingólfsson.
Páskadagur 4. apríl 8.00 Páskaguðsþjónusta með helgileik úr Hólabókinni 1589 Prestur sr. Jón Dalbú Hróbjartsson. Tónlistarflytjendur: Mótettukór Hallgrímskirkju ásamt einsöngvurum og hljóðfæraleikurum. Stjórnandi: Hörður Áskelsson. Orgelleikari: Björn Steinar Sólbergsson.
11.00 Kantötuguðsþjónusta á páskum Hátíðarkantatan „Jauchzet Gott in allen Landen” BWV 51 eftir J. S. Bach fyrir sópran, trompet og strengi flutt af félögum úr Alþjóðlegu barokksveitinni í Den Haag og Herdísi Önnu Jónasdóttur sópran. Stjórnandi: Hörður Áskelsson. Orgelleikari: Björn Steinar Sólbergsson. Mótettukór Hallgrímskirkju syngur. Prestar: Sr. Jón Dalbú Hróbjartsson og sr. Birgir Ásgeirsson, sem prédikar.
Annar í páskum 5. apríl 18.00 Schnittke og trúarleg tónlist á tuttugustu öld Helgi Jónsson tónlistarfræðingur flytur fyrirlestur um Alfred Schnittke – líf hans og verk og ástæður þess að hann samdi trúarlega tónlist. Staðsetning: Listasafn Einars Jónssonar. Að fyrirlestrinum loknum býður Kaffi Loki upp á Kirkjulistahátiðardisk áður en gengið er til kirkjunnar til að upplifa Schnittke tónleikana. Aðgangur ókeypis – allir velkomnir.
20.00 Ísafold – Schola cantorum - Schnittke Kammersveitin Ísafold, skipuð 20 hljóðfæraleikurum ásamt Schola cantorum, kammerkór Hallgrímskirkju sem skipaður er 15 söngvurum, flytja Sinfóníu nr. 4 eftir Alfred Schnittke. Einsöngvarar: Guðrún Edda Gunnarsdóttir alt og Bragi Bergþórsson tenór. Sinfónían, sem er samin árið 1984 er trúarleg og sameinar laglínur frá fjórum kirkjudeildum: Gyðingum, rússnesku rétttrúnaðarkirkjunni, mótmælendum og kaþólikkum. Textinn er frá 10. öld úr „Book of Lamentations“ eftir armenska ljóðskáldið Gregory af Naser. Stjórnandi: Daníel Bjarnason, handhafi Íslensku tónlistarverðlaunanna 2010 og Menningarverðlauna DV 2010. Miðaverð: 3.000 kr. / 2.000 kr.
Þriðjudagur 6. apríl 10.30 Fyrirbænaguðsþjónusta í kórkjallara
12.00 Tónlistarandakt – Íhugun um Maríu við gröfina Umsjón: Sr. Kristján Valur Ingólfsson. Tónlistarflutningur: Herdís Anna Jónsdóttir sópran.
Miðvikudagur 7.
apríl 12.00 Tónlistarandakt – Íhugun um Emmaus Umsjón: Sr. Kristján Valur Ingólfsson. Einsöngur: auglýstur síðar.
Fimmtudagur 8. apríl 12.00 Tónlistarandakt – Íhugun um máltíð Drottins Umsjón: Sr. Kristján Valur Ingólfsson. Tónlistarflutningur: Thomas Müller, Jurij Alberto Meile, Ella Vala Ármannsdóttir og Sturlaugur Jón Björnsson, sem leika á náttúruhorn.
Föstudagur 9. apríl 12.00 Tónlistarandakt – Íhugun um Tómas og efann Umsjón: Sr. Kristján Valur Ingólfsson. Tónlistarflutningur: Schola cantorum.
Laugardagur 10.
apríl
Lokatónleikar Kirkjulistahátíðar 2010 17:00 „Ein Deutsches Requiem”- Þýsk sálumessa eftir Johannes Brahms Eitt stærsta tónverk kirkjutónbókmenntanna nú flutt í fyrsta sinn af Mótettukór Hallgrímskirkju og Herði Áskelssyni. Hápunktur rómantísku óratóríunnar, hrífandi verk um sorg og huggun, dauða og upprisu. Flytjendur: Birgitte Christenssen sópran frá Noregi, Andreas Schmidt barítón frá Þýskalandi, Mótettukór Hallgrímskirkju, 50 manna hljómsveit skipuð hljóðfæraleikurum úr kammersveitinni Ísafold og Sinfóníuhljómsveit Íslands ásamt 4 náttúruhornleikurum, m.a. frá Basel í Sviss. Stjórnandi: Hörður Áskelsson. Miðaverð: 4.900 kr. / 3.900 kr.
Sunnudagur 11.
apríl
Endurflutningur lokatónleika Kirkjulistahátíðar 2010 17:00 „Ein Deutsches Requiem”- Þýsk sálumessa eftir Johannes Brahms Eitt stærsta tónverk kirkjutónbókmenntanna nú flutt í fyrsta sinn af Mótettukór Hallgrímskirkju og Herði Áskelssyni. Hápunktur rómantísku óratóríunnar, hrífandi verk um sorg og huggun, dauða og upprisu. Flytjendur: Birgitte Christenssen sópran frá Noregi, Andreas Schmidt barítón frá Þýskalandi, Mótettukór Hallgrímskirkju, 50 manna hljómsveit skipuð hljóðfæraleikurum úr kammersveitinni Ísafold og Sinfóníuhljómsveit Íslands ásamt 4 náttúruhornleikurum, m.a. frá Basel í Sviss. Stjórnandi: Hörður Áskelsson. Miðaverð: 4.900 kr. / 3.900 kr. |
DAGSKRÁ 









