| Um hátíðina 2010 |
|
|
|
|
Á hátíðinni fléttast listin saman við ríkulegt helgihald þessara daga. Boðið verður upp á kirkjulist fyrir alla aldurshópa í framsetningu framúrskarandi listafólks. Tónlistin er sem fyrr í öndvegi, en með myndlistarsýningu Ólafar Nordal og helgun bronshurðar Leifs Breiðfjörð fær myndlistin líka verðugan sess í dagskrá hátíðarinnar. Flytjendur skipta hundruðum, flestir innlendir, en í þetta sinn verða aðeins fáir erlendir gestir í hópi listflytjenda. Hátíðin hefst á Pálmasunnudag með mikilli skrúðgöngu, þar sem þátttakendur endurlifa innreiðina í Jerúsalem, veifandi birkigreinum, syngjandi hósanna, líkt og tíðkast í kaþólskum löndum á suðlægari slóðum á þessum degi. Daglegt helgihald með valinni tónlist, sinfónía, óratóría, jass, gospel, stórkór barna, listasmiðja barnanna og listavaka unga fólksins mynda samfellda keðju viðburða í tvær vikur. Hátíðinni lýkur með flutningi Þýskrar sálumessu eftir Johannes Brahms, þar sem sorg og huggun eigast við í einu áhrifaríkasta listaverki sinnar tegundar. Kirkjulistahátíð býður alla velkomna að njóta fjölbreyttrar dagskrár í í Hallgrímskirkju í tvær vikur frá 28. mars til 11. apríl. Aðstandendur Kirkjulistahátíðar eru Listvinafélag og sóknarnefnd Hallgrímskirkju, auk Biskups Íslands.
Hörður Áskelsson, listrænn stjórnandi
|
Um hátíðina 2010 










Kirkjulistahátíð 2010 verður haldin í Hallgrímskirkju frá 28. mars til 11. apríl. Þetta er 12. kirkjulistahátíðin sem Listvinafélag Hallgrímskirkju stendur fyrir og hefur sett mark sitt á menningarlíf í Reykjavík síðan árið 1987. Einkunnarorð hátíðarinnar í ár, sem nú er í fyrsta sinn haldin um páska, eru “Frá myrkri til ljóss”. Með þeim orðum vill Kirkjulistahátíð undirstrika það markmið að tengja kirkjulist túlkun atburða kirkjuársins, sem með dymbilviku og páskum, þegar lífið ber sigurorð af dauða, tekst á við dýpstu viðfangsefni kristinnar trúar. Um leið vill Kirkjulistahátíð leitast við að vera farvegur birtu á erfiðum tímum í þjóðlífi Íslendinga.