Alþjóðlega barokksveitin í Hallgrímskirkju

Alþjóðlega barokksveitin í Hallgrímskirkju (áður Den Haag) er skipuð úrvals hljóðfæraleikurum víðs vegar að úr heiminum, en meðlimir sveitarinnar eiga það flestir sameiginlegt að hafa numið við Konunglega tónlistarháskólann í Den Haag í Hollandi sem er leiðandi í kennslu á barokkhljóðfæri. Að námi loknu hafa meðlimir Alþjóðlegu barokksveitarinnar haslað sér völl sem eftirsóttir hljóðfæraleikarar og leika nú reglulega með mörgum af helstu upprunasveitum heims undir stjórn nafntogaðra stjórnenda. Má þar nefna hljómsveitir á borð við Les Arts Florissants, Amsterdam Baroque Orchestra, Bach Collegium Japan, Orchestra of the Age of Enlightenment, Collegium Vocale Gent og stjórnendur á borð við William Christie, Ton Koopman, Masaaki Suzuki og Philippe Herreweghe.

Meðlimir Alþjóðlegu barokksveitarinnar í Hallgrímskirkju hafa verið tíðir gestir á Íslandi frá því að þeir komu fyrst til að taka þátt í flutningi á Jólaóratóríu Bachs á Jólatónlistarhátíð Hallgrímskirkju árið 2004 og aftur 2005, en sveitin kemur nú saman til tónleikahalds með kórum Hallgrímskirkju undir stjórn Harðar Áskelssonar í ellefta sinn. Sveitin kom fram á Kirkjulistahátíðum 2005, 2007 og 2015, lék á 30 ára afmælistónleikum Mótettukórsins og 30 ára vígsluafmælistónleikum Hallgrímskirkju.

Auk þess að gleðja tónleikagesti í Hallgrímskirkju hefur sveitin leikið í Hörpu og í Hofi á Akureyri. Meðal verka sem Alþjóðlega barokksveitin hefur leikið með Mótettukór Hallgrímskirkju eru Matteusarpassía, Jóhannesarpassía og H-moll messa Bachs, Salómon eftir Händel og Te Deum eftir Charpentier, en með Schola cantorum hefur sveitin flutt Messías og Ísrael í Egyptalandi eftir Händel og Jólaóratóríu Bachs.

Hljómsveitin hefur undantekningarlaust fengið frábæra dóma fyrir leik sinn og hefur átt ómetanlegan þátt í að kynna flutningsmáta upprunastefnu og hljóðfæri barokktímans hér á landi.