Björn Steinar Sólbergsson

Björn Steinar Sólbergsson

2010 – present

2010 – present

Björn Steinar Sólbergsson er organisti við Hallgrímskirkju í Reykjavík og tekur virkan þátt í  blómlegu listastarfi kirkjunnar. Hann er einnig skólastjóri við Tónskóla Þjóðkirkjunnar þar sem hann kennir jafnframt orgelleik. Björn Steinar stundaði tón-listarnám við Tónlistarskólann á Akranesi og í Tónskóla þjóð-kirkjunnar í Reykjavík. Meðal kennara hans þar voru Haukur Guðlaugsson og Fríða Lárusdóttir. Framhaldsnám stundaði hann á Ítalíu hjá James E. Göettsche og í Frakklandi við Conservatoire National de Region de Rueil Malmaison hjá Susan Landale þar sem hann útskrifaðist með einleikarapróf í orgelleik (Prix de virtuosité) árið 1986. Hann starfaði sem organisti við Akureyrarkirkju í 20 ár þar sem hann vann markvisst að uppbyggingu tónlistarstarfs við kirkjuna.

Björn Steinar hefur haldið fjölda einleikstónleika hér heima og erlendis og leikið einleik með Sinfóníuhljómsveit Íslands, Kammerhljómsveit Akureyrar, Sinfóníuhljómsveit Norðurlands og The Cleveland Institute of Music Orchestra. Hann hefur hljóðritað fyrir útvarp og sjónvarp og á geislaplötur, m.a. öll orgelverk Páls Ísólfssonar. Björn Steinar hlaut Menningarverðlaun DV 1999, Íslensku bjartsýnisverðlaunin 2001 og var valinn bæjarlistamaður Akureyrar 2002.Á þessu ári kemur Björn Steinar fram á tónleikum á Íslandi, í Þýskalandi, Finnlandi og á Ítalíu.

Björn Steinar Sólbergsson, organist of Hallgrímskirkja in Reykjavík was born in Akranes, western Iceland in 1961. In 1981 he completed his studies at the National Church School of Music, majoring the organ, before studying for a year in Rome with James E. Goëttsche. Björn Steinar then moved to France where he studied with Susan Landale at the Conservatoire National de Musique de Rueil Malmaison and received the Prix de Virtuosité in summer of 1986. The same year he was appointeded organist in Akureyri Church, north Iceland, where he became very active in the musiclife of Akureyri.In atumn 2006 he was appointed organist in Hallgrímschurch in Reykjavík. He is also headmaster of the National Church School of Music in Reykjavík.

Björn Steinar plays organ-music from all periods as well as Icelandic organ- music and arrangements of Scandinavican folk-songs and dances. His recordings of organ and choirmusic have been released on several CD´s and broadcasted on Icelandic State Radio and TV. He received the DV- Cultural-prize for the year 1999, Icelandic Optimism-prize in 2001 and he is The Akureyri Artist of the year 2002.

Björn Steinar has given concerts in USA, Canada, England, Italy, France, Germany, Latvia, Denmark, Sweden, Norway, Finland and Iceland and performed as a soloist with the Icelandic Symphony Orchestra, the Akureyri Chamber Orchestra and the Cleveland Institute of Music Orchestra.

Björn Steinar Sólbergsson

organisti | organist