Kirkjulistahátíð 2015 hefst í næstu viku

Opening of the Festival of Sacred Arts 2015
Setning Kirkjulistahátíðar 2015
23/07/2015
Salómon: Kór og hljómsveit saman í barokksveiflu
13/08/2015

Kirkjulistahátíð 2015 hefst í næstu viku

Æfingar eru nú hafnar af krafti fyrir Kirkjulistahátíð 2015. Ber þar hæst undirbúning fyrir hina stórkostlegu óratóríu Händels um Salómon konung sem flutt verður 15. og 16. ágúst næstkomandi, en Mótettukór Hallgrímskirkju syngur þessa dagana sleitulaust í heilum átta röddum og ríkir mikil eftirvænting og gleði í hópnum vegna tónleikanna.Opin æfing 1

Æfingar stjórnanda með einsöngvurum eru einnig komnar í fullan gang og styttist í að barokkhljómsveitin sem leikur í Salómoni komi til landsins.

Þá eru barokkdansarar farnir að dusta rykið af hárkollunum og stíga sporin af miklum móð fyrir opnunarhátíðina föstudaginn 14. ágúst.

Miðasala á viðburði hátíðarinnar gengur vel, en hún fer fram á midi.is  og einnig í Hallgrímskirkju (s. 510 1000 – opið alla daga 9–17 og til kl. 21 frá og með mánudeginum 10. ágúst).Opin æfing 10