Mótettukórinn

Mótettukór

Mótettukór Hallgrímskirkju var stofnaður 1982 og hefur lengi verið meðal fremstu kóra Íslands. Verkefnalisti kórsins er langur og fjölskrúðugur. Þar má finna fjölmargar óratóríur, passíur og sálumessur en líka kórverk án undirleiks frá ýmsum tímum, auk þess sem kórinn hefur frumflutt fjölda íslenskra tónverka. Mótettukórinn hefur farið í margar tónleikaferðir og sungið í helstu dómkirkjum Evrópu, auk þess sem hann hefur tekið þátt í tónlistarhátíðum á borð við Listahátíðina í Bergen, Norrænu kirkjutónlistarhátíðina í Gautaborg og Wiener Festwochen. Kórinn vann til verðlauna í Alþjóðlegu kórakeppninni í Cork á Írlandi og í September 2014 vann kórinn til þrennra gullverðlauna á Alþjóðlegri Kórakeppninni Cançó Mediterrània á Spáni þar sem kórinn vann einnig Grand Prix verðlaun sem besti kór keppninnar.

Meðal stórverka sem Mótettukórinn hefur flutt á síðustu árum má nefna Matteusarpassíu, Jóhannesarpassíu, Jólaóratóríu og H-moll messu J.S. Bachs, sálumessur eftir Mozart, Duruflé og Fauré,  óratóríurnar   Elía og Paulus eftir Mendelssohn, Vesper eftir Rachmaninoff, Messu fyrir tvo kóra eftir Frank Martin og Þýska sálumessu eftir Johannes Brahms. Kórinn kemur auk þess reglulega fram með Sinfóníuhljómsveit Íslands, en í mars 2012 flutti hann ásamt sveitinni Messu í c- moll eftir Mozart og í júní sama ár 9. sinfóníu Beethovens en fyrir þann flutning var kórinn tilnefndur sem flytjandi ársins í flokki klassískrar tónlistar á íslensku tónlistarverðlaununum 2012. Þetta þrítugasta afmælisár kórsins var mikið hátíðarár því auk alls framangreinds söng  kórinn Jólaóratóríu J.S. Bachs í Eldborg milli jóla og nýárs ásamt einsöngvurum og Alþjóðlegu barokksveitinni í Den Haag.

Mótettukór Hallgrímskirkju hefur sungið inn á marga geisladiska og hefur fengið mikið lof erlendra gagnrýnenda fyrir diska með sálumessu Maurice Duruflé og Passíu eftir Hafliða Hallgrímsson. Þá hafa komið út geisladiskar hjá sænska útgáfufyrirtækinu BIS þar sem kórinn syngur verk Jóns Leifs með Sinfóníuhljómsveit Íslands. Einnig hafa jólageisladiskar Mótettukórsins notið mikilla vinsælda enda eru árlegir jólatónleikar kórsins ómissandi þáttur í tónlistarlífi Reykjavíkur á aðventunni.

Meðal nýlegra frumflutninga kórsins á íslenskum verkum má nefna óratóríuna Cecilíu eftir Áskel Másson og Thor Vilhjálmsson árið 2009, sem var tilnefnd til Íslensku tónlistarverðlaunanna 2010 sem tónverk ársins, og Fléttu eftir Hauk Tómasson, sem var frumflutt á Listahátíð í Reykjavík 2011 og kom út í lok síðasta árs bæði á mynd- og geisladiski. Þá má nefna að kórinn flutti Passíu Hafliða Hallgrímssonar fyrr á þessu ári í Hallgrímskirkju ásamt hljómsveit og hlaut lof gagnrýnenda fyrir.