Mótettukórinn

Mótettukór

Mótettukór Hallgrímskirkju

Mótettukór Hallgrímskirkju var stofnaður 1982 og hélt því nýlega upp á 35 ára afmæli sitt.  Kórinn hefur allt frá upphafi verið meðal fremstu kóra Íslands. Verkefnalisti kórsins er langur og fjölskrúðugur og má þar finna fjölmargar óratóríur, passíur og sálumessur en einnig kórverk án undirleiks frá ýmsum tímum, auk þess sem kórinn hefur frumflutt fjölda íslenskra tónverka.  Mótettukórinn hefur farið í margar tónleikaferðir og sungið í helstu dómkirkjum Evrópu, auk þess að taka þátt í tónlistarhátíðum á borð við Listahátíðina í Bergen, Norrænu kirkjutónlistarhátíðina í Gautaborg og Wiener Festwochen.

Kórinn hefur einnig sótt erlendar kórakeppnir, nú síðast þegar hann att kappi við kóra í heimsklassa í strandborginni Jurmala í Lettlandi.  Hann vann til verðlauna í Alþjóðlegu kórakeppninni í Cork á Írlandi og í september 2014 vann kórinn til þriggja gullverðlauna á Alþjóðlegri Kórakeppninni Cançó Mediterrània á Spáni þar sem kórinn vann einnig Grand Prix verðlaun sem besti kór keppninnar.

Meðal stórverka sem Mótettukórinn hefur flutt á síðustu árum má nefna Matteusarpassíu, Jóhannesarpassíu, Jólaóratóríu og H-moll messu J.S. Bachs, sálumessur eftir Mozart, Duruflé og Fauré, óratóríurnar Elía og Paulus eftir Mendelssohn, Vesper eftir Rachmaninoff, Messu fyrir tvo kóra eftir Frank Martin og Þýska sálumessu eftir Johannes Brahms. Kórinn kemur reglulega fram með Sinfóníuhljómsveit Íslands og hefur einnig haldið fjölmarga rómaða tónleika ásamt Alþjóðlegu barokksveitinni í Hallgrímskirkju (áður Den Haag).  Nú síðast í apríl 2018 tók kórinn þátt í lifandi bíótónleikum Sinfóníuhljómsveitar Íslands á uppfærslu kvikmyndarinnar Amadeus eftir Miloš Forman ásamt því að syngja með í stórfenglegum lokakafla Upprisusinfóníu Mahlers síðar sama ár.

Mótettukór Hallgrímskirkju hefur gefið út mikið af efni og hefur til að mynda fengið mikið lof erlendra gagnrýnenda sálumessu Maurice Duruflé og Passíu eftir Hafliða Hallgrímsson. Þá hefur komið út efni hjá sænska útgáfufyrirtækinu BIS þar sem kórinn syngur verk Jóns Leifs